top of page
Elderly Couple Contract
FORSÍÐA

Opnum íslenska heilbrigðisþjónustu á Spáni

Álit þitt, reynsla og skoðanir skipta miklu máli. Við vinnum að því að bæta endurhæfingar- og heilbrigðisþjónustu á Costa Blanca svæðinu.
Ef þú ert búsett/ur á Spáni að öllu leiti eða hluta ársins, vinsamlegast gefðu þér smá tíma í að svara könnuninni.

Ekki gleyma að haka í "skrá mig" hér að neðan!

Fá nýjustu fréttir

Þúsundir íslendinga, aldraðir, öryrkjar og aðrir, dvelja langdvölum á Spáni.
Margir af þeim myndu vilja fá heimahjúkrun á Spáni og geta dvalið í umönnunar- og endurhæfingarplássi þar. 

Vegna takmarkaðs framboðs á rýmum í íslenskum umönnunar- og endurhæfingarplássum og mikils álags á íslenska heilbrigðiskerfið, skorum við á félags- og húsnæðismálaráðherra, heilbrigðisráðherra og ríkistjórn Íslands að stuðla að því að bjóða íslendingum á Spáni upp á íslenska heimahjúkrun og í framtíðinni umönnunar- og endurhæfingarpláss á Spáni. Þetta mætti gera í nokkrum skrefum:

 

FYRSTA SKREFIÐ

  1. Að koma á  samstarfi við íslensk stjórnvöld um samþykki vegna greiðslu þátttöku fyrir heimahjúkrun eða vist í umönnunar- og endurhæfingarplássi á Spáni.

  2. Að skoða samstarf við yfirvöld á Spáni um skipulag og leyfisveitinar varðandi rekstur umönnunar- og endurhæfingarþjónustu.
     

NÆSTA SKREF
Setja upp tilraunaverkefni með  umönnunar- og endurhæfingarplássum með íslensku starfsólki og bjóða samhliða upp á heimahjúkrun.
 

LOKASKREFIÐ
Stefna að uppbyggingu á þjónustukjarna fyrir umönnunar- og endurhæfingarþjónustu á Torreviejasvæðinu á Spáni og þar sem samhliða væri boðið upp á heimahjúkrun fyrir íslendinga með íslensku fagfólki.  

Supportive Hands
HVERS VEGNA ÞETTA VERKEFNI?

​Hvers vegna ætti að skoða möguleika á að reka íslenska heilbrigðis þjónustu á Spáni?

 

  1. Betri heilsa og betri lífsgæði vegna veðurfars í Torrevieja, minni lyfjataka og betri staða vegna gigtar og psoriasis (sjá nánar).

  2. Ódýrara húsnæði og lægri rekstrarkostnaður.
     

  3. Lægri fæðiskostnaður og möguleiki á hollara fæði, svo sem aðgengi að nýju grænmeti og ávöxtum allt árið (sjá nánar).
     

  4. Lægri lyfjakostnaður á Spáni en á Íslandi (sjá nánar).      
     

  5. Möguleiki fyrir endurhæfingu sjúklinga, með tímabundinni dvöl í sólinni og hitanum á Spáni (sem íslenska ríkið myndi styðja) (sjá nánar).    
     

  6. Margir Íslendingar á Spáni telja að þeir séu félagslega virkari og hafi myndað sterkara félagslegt net heldur en þeir gætu á Íslandi. Þrátt fyrir versnandi heilsu og hreyfigetu með hækkandi aldri telja þeir betra fyrir sig að dvelja áfram á Spáni en á Íslandi, ef þjónusta væri fyrir hendi.
     

  7. Uppbygging og rekstur íslenskrar umönnunar- og endurhæfingarþjónustu á Spáni mundi minnka álag og eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu á Íslandi og er hagkvæmari á hvern einstakling.
     

  8. Hvað hefur Spánn fram yfir Ísland þegar kemur að lýðheilsu? (sjá meira).

Umsagnir íslendinga sem búa á Spáni

  • Dvölin á Spáni hefur mikil jákvæð áhrif á heilsu, líkamlega og andlega.

  • Hlýtt loftslag og möguleg útivera dregur úr verkjum.

  • Fólk segist eiga megnið af sínum vinum á Spáni og í raun vera með allt sitt félagslega net þar.

  • Margir lýsa því hvernig gigt eða önnur veikindi hafi leitt þá til Spánar.

  • Mikill fjöldi telur það mjög góðan kost að eyða efri árum á Spáni.

Nurse checking patient's back

Dæmi um norræn verkefni

www.scandclinic.com 

  • ScandClinic rekur heilsugæslustöðvar á Spáni, m.a. á Costa Blanca og Costa del Sol, og segir „All staff speak Swedish and English!“.

  • Þjónustan nær yfir almennan læknisskoðun, sýnatökur, heilbrigðispróf, og meðferðir fyrir krónísk veikindi.

www.nordichealthcare.es 

  • Nordic Health Care auglýsir þjónustu 24/7, með læknum sem tala m.a. ensku, sænsku, frönsku, þýsku og spænsku. nordichealthcare.es

  • Þeir bjóða heimakalla, rannsóknir, bráðaviðbragð o.s.frv.

https://nmc.care/

  • Nordic Medic Centre er einkarekinn heilbrigðisstofnun í Torrevieja með áherslu á norræna og alþjóðlega sjúklinga.

  • Markmiðið þeirra er að auðvelda heilbrigðisþjónustu fyrir norræna sjúklinga sem búa á Spáni eða heimsækja hana og vilja finna fyrir öryggi í gegnum allt heilbrigðissambandið.

Dæmi

Teymið á bak við IHAS

​​

  • Guðrún Gyða Ölvisdóttir​​ lýðheilsu- og geðhjúkrunarfræðingur​ - gydaolv@gmail.com - Sími +3546974399

  • Helga Vala Gunnarsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur​​​​ - helgavala72@gmail.com - Sími +3547743088

  • Hlynur Atli Sigurðsson rekstrarverkfræðingur​​​ - hlynuratlisig@gmail.com - Sími +3548950409

  • Ásgeir Örn Hlöðversson mannvirkjaverkfræðingur - asgeir@render.is - Sími - 3546987912

  • Guðmundur G. Hauksson vélfræðingur og lífstíls- og öldrunarmarkþjálfi - gudmundur@gordon.is - Sími +3548930014

Anchor 1

Bætum lífsgæði

...opnum heilbrigðisþjónustu fyrir íslendinga á Spáni
bottom of page